Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Þriðjudagur 16. júní 2009 kl. 09:04

Gauti Grétarsson er kylfingur vikunnar

Kylfingur vikunnar að þessu sinni er enginn annar en Gauti Grétarsson úr Nesklúbbnum. Hann starfar sem sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og sinnir þar endurhæfingu einstaklinga sem hafa lent í slysum eða fengið sjúkdóma. „Sífellt meiri tími fer í að sinna álagseinkennum kylfingar auk þess sem ég aðstoða marga þeirra við að bæta líkamlega getur til að ná árangri í golfi,“ segir Gauti sem er fær kylfingur og er með 4.0 í forgjöf.

Hann er einnig yfirþjálfari hjá handknattleiksdeild Gróttu en 330 krakkar á aldrinum 6-18 ára æfa handbolta hjá félaginu. Hann hefur stýrt leikfimihópi karla í hádeginu undanfarin 20 ár. Gauti er vel menntaður en hann er með BS próf frá Háskóla Íslands í sjúkraþjálfun og MTc próf frá St. Augustine University í Flórída. Hann er í framhaldsnámi við HÍ í íþróttalífeðlis- og næringarfræði og hefur sótt námskeið hjá Titleist performance Institute í aðferðum til að bæta getu kylfinga í golfi. Hann er giftur Hildigunni Hilmarsdóttir íþróttakennara og handboltaþjálfara og á 3 börn sem öll eru í íþróttum.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Byrjaði í golfi 30 ára fyrir tæpum 20 árum. Var að hætta í handbolta og vissi að ég þyrfti að fá nýja ögrun til að halda mér við efnið. Setti mér markmið að komast í meistaraflokk á 10 árum. Tók 11 ár og hef náð að halda forgjöfinni í kringum 4 síðustu ár.

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
Var í öllum íþróttagreinum sem strákur, handbolta, fótbolta, skíðum, frjálsum og meira að segja blaki. Valdi handbolta, náði silfri í 2. flokki og spilaði í meistaraflokki með Gróttu, Fram og nokkur ár í Noregi.

Hver eru helstu markmiðin?
Markmiðið í golfinu eru að leika golf á 50 golfvöllum á næsta ári. Langtímamarkmiðið er og að geta leikið golf fram í rauðann dauðann.

Helstu afrek í golfinu?
2 x hola í höggi, 3. sæti í 1. flokki á landsmóti árið 2000. 4.–6. sæti í Íslandsmóti 35 ára og eldri árið 2008.

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Það var þegar ég fór holu í höggi í síðara skiptið. Átti að gera eitthvað viðvik fyrir konuna en ætlaði að skreppa nokkrar holur fyrst. Fór holu í höggi á 5 holu og þurfti að klára hringinn. Konan hringdi í golfskálann til að grennslast fyrir um mig og þar var henni sagt að þar sem ég hefði farið holuí höggi hefði ég þurft að klára hringinn. Þetta fannst henni ekki fyndið og sagði að þið strákarnir standið alltaf saman að finna afsakanir fyrir því að spila meira golf. Hún trúði mér ekki fyrr en daginn eftir þegar hús las frétt um þetta afrek mitt í Mogganum.

Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
Búinn að fara 2 golfferðir í ár. Til Flórída í mars og Svíþjóðar í maí. Stefni á eitthvað skemmtilegt í haust. Annars finnst mér ekkert toppa golfferð til, Vestmannaeyja eða á Geysisvöllinn í Haukadal.

Hvað ætlar þú að gera til að lækka forgjöfina í sumar?
Æfa meira og spila meira. Vinna minna.

Hver er uppáhaldskylfingurinn og afhverju?
Björgvin Sigurbergsson. Hef starfað með honum síðan 1994. Góð fyrirmynd, reglusamur, jákvæður og einstaklega þægilegur persónuleiki.

Er Tiger of stór fyrir golfheiminn?
Þetta er eins og að spyrja hvort Ronaldo sé of stór fyrir fótboltann. Tiger er hluti af golfheiminum, fyrirmynd sem dregur að sér athyglina.

Staðreyndir:
Nafn:
Gauti Grétarsson
Klúbbur: NK
Forgjöf: 4,0
Golfpokinn: Ping
Golfskór: Nike
Golfhanski: Enginn sérstakur
Markmið í golfinu: Að bæta sig
Fyrirmynd: Björgvin Sigurbergsson
Uppáhalds matur:  Humar með eplasalati
Uppáhalds drykkur: Appelsínusafi
Ég hlusta á: Konuna mína
Besti völlurinn: Vestmannaeyjar
Besta skor (hvar): Hella, 69, 2009
Besta vefsíðan: Google.is
Besta bókin: Ævisaga Sir Alex Ferguson
Besta bíómyndin: Slumdog millionaire

Myndir/Kylfingur.is