Fyrsti Englendingurinn til að sigra á PGA mótinu í 107 ár
Aaron Rai skráði nafn sitt í sögubækurnar með því að sigra á 108. PGA-meistaramótinu á Aronimink golfvellinum í Pensilvaníu í Bandaríkjunum. Hann er fyrsti Englendingurinn í 107 ár til að lyfta Wanamaker-bikarnum og jafnframt fyrsti kylfingurinn af indverskum ættum til að vinna risamót en PGA mótið er eitt af risamótunum fjórum.
Þótt búist hefði verið við að kylfingar myndu knésetja völlinn með löngum höggum, reyndust holustaðsetningarnar þær erfiðustu sem sést hafa í seinni tíð. Á sunnudeginum var stöðutaflan þétt og fjöldi risameistara. Rai hóf lokahringinn tveimur höggum á eftir efsta manni en tapaði þremur höggum á fyrstu átta holunum og þótti ekki líklegur til afreka. Eftir mikilvægt spjall við kylfusveininn sinn setti hann niður magnað 12 metra arnar-pútt á níundu holu sem hleypti nýju lífi í baráttu Englendingsins. Hann fylgdi því eftir með fuglum á 11., 13. og 16. holu. Á 17. braut innsiglaði hann sigurinn með ótrúlegu 21 metra fuglapútti og lék síðustu 10 holurnar á sex undir pari. Hann endaði á samtals níu höggum undir pari, þremur höggum á undan Jon Rahm og Alex Smalley. Auk Rahm voru í toppbaráttunni risameistarar eins og Scheffler, Justin Thomas, Rory Mcilroy, Schaufflele og Justin Rose.
Óvenjulegur bakgrunnur
Rai fæddist í Wolverhampton, sonur innflytjenda frá Kenýa og Indlandi. Kynning hans á golfi var tilviljun; hann meiddi sig með ísknattleikskylfu sem smábarn og móðir hans keypti óvart plastgolfkylfur í staðinn til að gera leikinn öruggari. Faðir hans tók fljótt eftir því að hreyfingar stráksins líktust meira golfsveiflu en tennishreyfingu. Allt til 12 ára aldurs var Rai að mestu einangraður frá jafnöldrum sínum og spilaði af sérsniðnum vallarlengdum til að ná tökum á grundvallaratriðunum áður en lengdinni var bætt við.
Við þetta lokaða uppeldi urðu til helstu einkenni og sérviska Rai sem fólst m.a. í því að hann byrjaði að nota hanskapar sem hann fékk gefins átta ára. Þegar faðir hans gleymdi þeim öðrum spilaði strákur skelfilega og hefur spilað með tvo hanska síðan. Faðir hans innrætti honum að virða eigur sínar þegar hann keypti handa honum dýr Titleist járn. Þeir þrifu þau með barnaolíu eftir hverja notkun og settu í hlífar, sem hann gerir enn í dag. Þá horfðu þeir feðgar á VHS spólur með Tiger Woods oft á dag.
Seiglan skilar sér á stóra sviðið
Rai varð unglingastjarna á Englandi og gerðist atvinnumaður 17 ára. Vegferðin var hæg en jöfn; hann lék á EuroPro mótaröðinni 2014 á sama tíma og Tommy Fleetwood og vann þar sitt fyrsta atvinnumannamót. Hann vann sér síðan þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni (HotelPlanner mótaröðinni og þaðan vann hann sig á DP, Evrópumótaröðina. Hann flutti til Bandaríkjanna 2020 og vann sér þátttökurétt á PGA í gegnum Korn Ferry mótaröðina. Á PGA vann hann sitt fyrsta mót í fyrra á Wyndham. Nú er hann orðinn handhafi risatitils. Alvöru vegferð hjá Englendingnum.
„Þetta er virkilega löng vegferð bara til þess að fá að keppa á stórmótum eins og PGA-meistaramótinu,“ sagði Rai. „Já, að standa hérna, ég er ekki alveg að meðtaka það.“
A huge eagle for Aaron Rai 🦅
A 40-footer moves him one shot out of the lead @PGAChampionship.pic.twitter.com/D0ptoMfXSn
AARON RAI FROM 68 FEET!! 🤯
He leads by 4 heading to his 72nd hole @PGAChampionship!pic.twitter.com/cX2htuthq5


