Fékk 100 millj.kr. hærra vinningsfé fyrir lokapúttið fyrir 2. sæti
Lokapúttið á 72. flöt hjá Bandaríkjamanninum Alex Smalley á PGA meistaramótinu skilaði honum hæsta verðlaunafé á þriggja ára ferli á PGA mótaröðinni. Með því að setja púttið í færðist hann úr 3. sæti í annað sætið með John Rahm og fékk þá rúmlega 100 milljónum króna hærri peningaupphæð fyrir árangurinn.
Smalley var aðeins að keppa á sínu fimmta risamóti og hafði aldrei endað ofar en í T-23 sæti í fyrri mótum. Hann var um tíma með forystu á PGA mótinu um síðustu helgi. Vinningsupphæðin fyrir að vera jafn í 2. sæti var 220 millj. kr.
Það mesta sem Alex Smalley hafði nokkru sinni unnið á einu móti á ferlinum var 652.000 dollarar þegar hann endaði í T-2 sæti á John Deere Classic árið 2023. Þannig að þetta pútt eitt og sér var meira virði en stærsta verðlaunafé hans á fimm ára ferli sínum á PGA-mótaröðinni.
Fuglinn tryggði honum einnig sæti á Masters-mótinu á næsta ári (allir í efstu fjórum sætunum á PGA-mótinu fá boð) og PGA-meistaramótinu (efstu 15 og jafnir fá að koma aftur). Þetta T-2 sæti lyfti honum einnig úr 78. sæti í 42. sæti á heimslistanum í golfi, sem veitti honum keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótið í næsta mánuði.
„Ég var satt að segja ekki að hugsa um [peningana eða þátttökurétt í mót] fyrr en ég sló inn á 18. flöt og sá hvar ég var staddur,“ sagði Smalley. „Ég var í raun bara að reyna að tvípútta. Ég var heppinn að það fór ofan í.“
Smalley var í viðtali þegar hann var í toppbaráttunni á PGA mótinu og sagði frá upplifun sinni að leika golf fyrir framan svona marga áhorfendur.


