Góð byrjun hjá þeim íslensku í Austurríki
Íslensku golfkonurnar þær Ragnhildur Kristinsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir byrjuðu frábærlega á Allegria Ladies Open í Austurríki en þær leika á LET Access mótaröðinni sem er sú næsta sterkasta í Evrópu. Völlurinn er krefjandi, en einungis sextán kylfingar léku undir pari í dag.
Þær stöllur léku allar á tveimur höggum undir pari og eru jafnar með öðrum í 3.-10. sæti mótsins á 68 höggum. Spilamennskan var misjöfn hjá þeim þremur en þær enduðu allar á -2.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur leik á morgun fimmtudag í Marokkó á móti í LET, Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í Evrópu.


