GB Ferðir með ferðir á Ryder-völlinn í vor
GB Ferðir bjóða upp á margar frábærar golfferðir í vor og ein þeirra er ferð á Celtic Manor golfsvæðið í Wales. Íslenskir kylfingar fá þar með tækifæri til að leika á Twenty Ten vellinum sem leikið var á í Ryder-bikarnum síðasta haust þar sem Evrópumenn höfðu betur gegn Bandaríkjamönnum í afar spennandi keppni.
Celtic Manor Resort er 120 mínútum frá Heathrow flugvellinum og er stað sett á landamærum Englands og Wales. Aðkoman er stórglæsileg þar sem hóteið gnæfir yfir í hæðunum.
Gist er á fimm stjörnu lúxushótel sem býður uppá alla þá þjónustu sem slík hótel gera. Hótelið opnaði 1999 en hefur verið í stöðugri byggingu síðastliðin átta ár og hleypur kostnaðurinn við standsetninguna á tæpum fjórum milljörðum króna. Mestur kostnaðurinn var að breyta byggingunni í 227 herbergja fimm stjörnu hótel. Allt hótelið er mjög nýtískulegt. Á hótelinu er þrír veitingastaðir, þrír barir, tvær sundlaugar, fjöldinn allur af fundarherbergjum, veislusalur fyrir 500 manns, fullkomin líkamsræktarsalur og lúxus heilsulind “Sequuoa Spa”. Rúsínan í pylsuendanum er svo að sjálfsögðu 3 stórkostlegir golfvellir. Frábært æfingasvæði fylgir hótelinu.
Hér má kynna sér ferðina betur á heimasíðu GB Ferða
Ferðir:
1-4. apríl (3 nætur)
8-11. apríl (3 nætur) - uppselt
15-18. apríl (3 nætur)
21-25. apríl (4 nætur, 5 golfhringir) - Páskaferð
29.apríl-02. maí (3 nætur) - uppselt
06.-09. maí (3 nætur)
13.-16. maí (3 nætur)
20.-23. maí (3 nætur) - uppselt
27.-30. maí (3 nætur) - uppselt
Verð:
Apríl kr. 135.000 á mann í tvíbýli
Maí kr. 145.000 á mann í tvíbýli.
Innifalið: 3 nætur með morgunverði, 3x 18 holur (Twenty Ten, Roman Road, Montgomery) ásamt aðgengi að heilsulind og líkamsræktarstöð hótelsins.