Geir Sigurður er kylfingur vikunnar

Geir Sigurður Jónsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Geir er viðskiptafræðingur með mastersgráður í tölvunarfræði. Hann stofnaði og sér um vefsíðuna Golfheimar.is sem vinnur úrvalslista og tölfræði út frá öllum skráðum hringjum. Geir er nokkuð flinkur í golfi enda er hann með 5,9 í forgjöf þó að forgjafarþróunin hafi verið í ranga átt að undanförnu. Kylfingur.is fékk Geir Sigurð til að svara nokkrum laufléttum spurningum.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Fór á námskeið hjá Sigga Hafsteins og Röggu Sig þegar ég var 12 ára. Eftir að hafa kynnst svoleiðis fyrirmyndum í golfinu, þá er ekki aftur snúið.“
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Sundi og fótbolta.“
Hver eru helstu markmiðin?
„Að snúa forgjafarþróuninni í rétt átt.“
Helstu afrek í golfinu?
„Var búinn að spila mig inn í toppbaráttu á þriðja degi í Meistaramóti GR í Grafarholti þegar ég kom á 6. teig. Yfirsló (gömlu) flötina og lenti í mosa. Gerði allt rangt og fékk 13 högg á holuna. Þetta er líklega eina metið sem ég á í golfi.“
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Aftur kominn í toppbaráttu á þriðja degi í Meistaramóti GR eftir 76 högg í Grafarholti á þriðja degi. Ranka við mér með skorkortið undirskrifað í vasanum á rakarastofu úti í bæ klukkutíma eftir hringinn. Fyrsta og eina frávísun sem ég hef fengið þó ég hafi oft daðrað við svona slys.“
Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Læt mér nægja bústað og nokkra hringi á Geysi. Það kemur út á sléttu.“
Hvað ætlar þú að gera til að lækka forgjöfina í sumar?
„Taka Gnarrinn á sumarið, setja smá gleði í spilið og sjá hvort hlutirnir gerast ekki bara.“
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Stutta spilið er minn helsti veikleiki þegar ég á slæma daga. Á góðum dögum er 80-130m spilið minn helsti styrkleiki því þá fækkar lélegum vippum. Fjöldi vippa+tvípútta segir alltaf alla söguna um skorið hjá mér.“
Hver er uppáhalds kylfingurinn og af hverju?
„Seve og Sergio Garcia eru með eitthvað passion sem smitar.“
Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Golfi, það endist miklu lengur.“
Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
„Man U og Spurs. Ég fékk fótboltamynd með Joe Jordan þegar ég var 5 ára og Spurs trefil skömmu síðar, eftir það var ekki aftur snúið.“
Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
„Lisa Simpson.“
Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
„Nei, en það eru álög á 12. brautinni í Korpunni, það flokkast ekki undir hjátrú, það er bara staðreynd.“
Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
„Ólafur Björn er líklega á góðri leið með að verða sá besti. Birgir Leifur er samt líklega ennþá bestur, ég fékk að draga hjá honum á túrnum í Madrid í fjóra daga og sá hvers konar golf hann spilar á góðum degi. Ég hef líka gaman af því að fylgjast með stelpunum sem eru að spila í háskólum erlendis, það á eitthvað skemmtilegt eftir að koma út úr því fyrir golfið á Íslandi.“
Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
„Ég veit ekki hvort Tryggvi Péturs er enn búinn að fyrirgefa mér úrslitaleikinn í nýliðabikar unglinga. Ég spilaði Grafarholtið á 80 höggum, og var skráður í mótið með 23 í forgjöf. Þegar ég vippaði niður fyrir fugli á fimmtu og var 1 undir eftir 5, þá vissi hann líklega hvert stefndi. Lækkaði í mótinu úr 23 í 16 í forgjöf en var svo fastur þar í 6 ár.“
Fylgist þú mikið með golfi?
„Ég er spenntur fyrir íslensku mótaröðinni í sumar, sérstaklega núna þegar maður getur séð stöðuna „Live“ á Golfheimar.is. Þá er hægt að vera úti á velli að fylgjast með og vita alltaf í símanum sínum hvar hlutirnir eru að gerast.“
Staðreyndir:
Nafn: Geir Sigurður Jónsson
Klúbbur: G.R.
Forgjöf: 5,9
Golfpokinn: Taylor Made R7, King Cobra Baffler TWS hálfvitar 19 og 23 gráður, Cobra járn, Titleist Vokey Spin Mill 60° og Taylor Made Z TP 54° og Odyssey pútter.
Golfskór: Footjoy
Golfhanski: Það sem hendi er næst
Markmið í golfinu: Að ná að spila sem mest og ná forgjöfinn að lokum aftur niður fyrir 4.
Fyrirmynd: Afi á Akranesi. Ég vona að ég verði ennþá að skokka á eftir boltanum á púttflötinni þegar ég verð níræður.
Uppáhalds matur: Verulega sterk þunnbotna pepperoni pizza.
Uppáhalds drykkur: Vatn
Ég hlusta á: ...konuna mína þegar hún bannar mér að segja frá tónlistarsmekk mínum opinberlega.
Besti völlurinn: Grafarholt
Besta skor (hvar): 70 á Hellu
Besta vefsíðan: Golfheimar.is
Besta bókin: The diary of Carl Pilkington


