Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Golf fyrir alla - Nýr DVD diskur með 8 klst af kennsluefni
Fimmtudagur 16. desember 2010 kl. 12:16

Golf fyrir alla - Nýr DVD diskur með 8 klst af kennsluefni

Golf fyrir alla er tvöfaldur DVD diskur með 8 klukkustunda efni þar sem farið er yfir alla helstu þætti golfleiksins. Það eru þeir Ólafur Már Sigurðsson og Brynjar Eldon Geirsson sem sjá um kennslu.

Á fyrri disknum er farið yfir grunnatriðin í púttum, vippum og sveiflunni auk þess sem farið er yfir upphitun, glompuhögg og mismunandi högg í kringum flatir. Á seinni disknum eru spilaðar 18 holur með mismunandi kylfingum og farið er yfir leikskipulag, kylfuval og högg úr mismunandi aðstæðum. Diskurinn er ætlaður byrjendum sem og lengra komnum.

Hægt er að kaupa diskinn á skrifstofu Pro Golf, Hólshrauni 2, í afgreiðslu Bása í Grafarholti eða í sími 555 7200.