Golf og bjór lykill að langlífi - segir 100 ára gömul írsk golfkona
Hundrað ára írsk kona, Alice O’Donovan segir að golf og bjóri eigi stærstan þátt í langlífi hennar. Hún lék síðast 18 holu hring þegar hún var 93 ára.
Alice og fjölskylda hennar fögnuðu aldarafmælinu nýlega í Grange golfklúbbnum í Dublin í Írlandi. Hún hefur leikið þúsundir golfhringja á vellinum en hún gekk í klubbinn árið 1941. Hún hitti Tim, sem síðar varð eiginmaður hennar á golfvellinum og Alice spurði hvort hún mætti ekki koma með honum. Það varð byrjunin að löngu hjónabandi. Þau eignuðust sex börn og barnabörnin eru þrettán. Alice lék með Grange golfliðinu í keppnum frá 1955 til 1963 og hún varð formaður kvenna (lady captain) 1972. „Ég lék golf nærri alla daga. Eftir hring settumst við niður í klúbbhúsin og fengum okkur bjór,“ sagði sú gamla sem er heiðursfélagi í klúbbnum.
Hér er viðtal og myndskeið frá Irish Times frá afmæli þeirrar gömlu.