Golfað fyrir Fjölskylduhjálp
Fimmtudaginn 17. september næstkomandi tí-a Brynjar Eldon Geirsson, Ólafur Már Sigurðsson og Sigurður Pétur Oddsson upp á fyrsta teig á Akranesi. Ætla þeir félagar að spila eins marga golfhringi á Garðavelli og þeir mögulega geta á meðan að bjart er eða frá kl. 7:00 til kl. 20:00. Verkefnið hjá strákunum ber yfirskiftina „PAR 1000 - Golfað Fyrir Fjölskylduhjálp“ og langar strákunum með þessu að heita á fólk í að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands og leggja sitt að mörkum.
Leikfyrirkomulagið er einfalt, slá strákarnir til skiptis allan daginn. Þeir sem vilja leggja þessu mikilvæga málefni lið geta hringt inn framlög í síma 551-3360 frá kl. 9:00 – 20:00 fimmtudaginn 17. september á skrifstofu Fjölskylduhjálpar eða lagt inn frjáls framlög á:
Fjölskylduhjálp Íslands
Reikningur. 101 – 26 - 66090
Kt. 660903-2590.
Stöndum öll saman og gerum okkar besta í því að styrkja þetta málefni og þar með fólk sem stólar á framlag Fjölskylduhjálpar Íslands. Við skorum sérstaklega á neðangreinda aðila að leggja okkur lið eftir bestu getu.
Golfsamband Íslands, Golfklúbbar, Almenningur, Bæjarfélög og öll fyrirtæki og einstaklinga sem vilja styðja þetta málefni.
Mynd/Kylfingur.is: Sigurður Pétur Oddson og Ólafur Már Sigurðsson munu leika golf af krafti á Akranesi á morgun. Á myndinni með þeim er Sigurþór Jónsson (t.v.) en Brynjar Eldon Geirsson mun leika með þeim á Akranesi.


