Fréttir

Golfklúbbur Kiðjabergs (GKB) styrkir Ljósið um 250 þúsund krónur
Frá vinstri: Þórhallur Einarsson, stjórnarmaður GKB, Erna Magnúsdóttir, framkvæmdarstýra Ljóssins og Guðmundur Ásgeirsson, formaður GKB.
Mánudagur 6. október 2025 kl. 10:35

Golfklúbbur Kiðjabergs (GKB) styrkir Ljósið um 250 þúsund krónur

Stjórn Golfklúbbs Kiðjabergs ákvað að veita Ljósinu styrk að upphæð 250 þúsund krónur. Um er að ræða innkomu af þátttökugjöldum í Bændaglímu sem haldin var laugardaginn 13. september.

Ljós­ið sinnir mikilvægu starfi sem margar fjölskyldur njóta á einn eða annan hátt. Með styrknum vill golfklúbburinn styðja áframhaldandi starfsemi þar sem velferð og lífsgæði fólks eru í brennidepli.

Golf er vinsæl útivist og hreyfing sem nýtist mörgum vel, og leggur Golfklúbbur Kiðjabergs áherslu á að allir geti tekið þátt á sínum forsendum. Klúbburinn hefur yfir að ráða fjölda golfbíla svo kylfingar með skerta hreyfigetu geti einnig notið leiksins.

„Við viljum stuðla að bættri lýðheilsu og leggja okkar af mörkum til þess að starfsemi Ljóssins dafni um ókomna tíð,“ segir í tilkynningu frá stjórn Golfklúbbs Kiðjabergs, sem hvetur aðra golfklúbba til að gera slíkt hið sama.