Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

GSÍ kynnir formlega mótaskrá
Eimskipsmótaröðin hefst á Akranesi þann 24. maí næstkomandi. Mynd/Kylfingur.is
Miðvikudagur 16. janúar 2013 kl. 16:50

GSÍ kynnir formlega mótaskrá

Golfsamband Íslands hefur gefið út formlega mótaskrá fyrir árið 2013. Annasamt golf ár er framundan en GSÍ hefur..

Golfsamband Íslands hefur gefið út formlega mótaskrá fyrir árið 2013. Annasamt golf ár er framundan en GSÍ hefur staðið fyrir Eimskipsmótaröðinni undanfarin ár auk þess að vera með tvær mótaraðir fyrir börn og unglinga; annars vegar Unglingamótaröðina og hins vegar Áskorendamótaröðina sem er ætluð ungum kylfingum sem eru að taka sín fyrstu spor í íþróttinni.

Eimskipsmótaröðin hefst 24. maí n.k. á Garðavelli á Akranesi. Mótaraðir unglinga hefjast viku fyrr eða 18. maí á Þorláksvelli fyrir Arion-banka mótaröðinni og á Húsatóftavelli í Grindavík á Áskorendamótaröðinni.

Breyting verður á unglingamótaröðinni í sumar að leikin verða sjö mót í stað sex áður. Gert er ráð fyrir að meistaramót golfklúbbana fari fram á tímabilinu 30. júní til 13. júlí. Það getur þó verið mismunandi á milli klúbba.