Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Kylfingur sumarsins ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni - valdi Gulla framyfir mótið
Aron Snær annar frá vinstri í fremri röð með félögum sínum og Gulla á US Open.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 19. júní 2026 kl. 13:00

Kylfingur sumarsins ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni - valdi Gulla framyfir mótið

Aron Snær Júlíusson, tvöfaldur Íslandsmeistari og sigurvegari þriggja fyrstu stigamótanna á GSÍ mótaröðinni í sumar, er ekki meðal keppenda á Íslandsmótinu í holukeppni í Leirunni nú um helgina, Aron valdi frekar að fara á US Open að fylgjast með Gulla félaga sínum úr GKG.

Aron segir í viðtali í hlaðvarpinu Seinni níu að þegar Gunnlaugur hafði tryggt sig inn á mótið hafi hann og fleiri félagar hans úr GKG ákveðið að skella sér til New York og fylgjast með þeirra góða vini. „Þetta var aldrei spurning. Ég get alltaf spilaði í holukeppninni, kannski fær ég aldrei aftur tækfæri á sjá Íslending á US Open,“ sagði hann í skemmtilegu spjalli við þá félaga Jón Júlíus Karlsson og Loga Bergmann.

Viðtalið við Aron Snæ.

Íslandsmótið í holukeppni karla fer fram á Hólmsvelli í Leiru 19.-21. júní en konurnar keppa á Urriðavelli á sama tíma.

Leiknar eru 36 holur í höggleik og síðan holukeppni laugardag og sunnudag.Sextán bestu þaðan komast í holukeppnina.

Skor í Leirunni.

Skor á Urriðavelli.