Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gulli í súperholli á síðasta æfingahring - fjöldi Íslendinga á US Open
Gunnlaugur og Scottie Scheffler í æfingahringnum. Myndir/gsi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 17. júní 2026 kl. 20:09

Gulli í súperholli á síðasta æfingahring - fjöldi Íslendinga á US Open

Það var þjóðhátíðarstemmning meðal Íslendinga á loka æfingadegi Gunnlaugs Árna Sveinssonar á 17. júní, en fyrsti keppnisdagur á US Open á Shinnecock Hills vellinum í New York er á morgun, fimmtudag. Fjöldi Íslendinga fylgdist með honum í stjörnum prýddum ráshópi en með Gulla voru Scottie Scheffler, besti kylfingur heims, Gary Woodland, fyrrum US Open meistari og Sam Burns, bandarískur stórkylfingur og sigurvegari á PGA mótaröðinni.

Scottie lét aðeins bíða eftir sér því hinir í hollinu voru búnir að slá upphafshögg á fyrsta teig og gengnir af stað þegar hann kom á teig en hann sló yfir þá félaga og sameinaðist þeim í æfingahringnum.

Eftir hringinn heilsuðu margir Íslendingar upp á Gulla, m.a. hópur kylfinga úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og fleiri. Í hópnium voru m.a. Birgir Leifur Hafþórsson, sigursælasti kylfingur Íslands og sjödfaldur Íslandsmeistari. Einnig var þar Aron Snær Júlíusson, tvöfaldur Íslandsmeistari og sigurvegari á fyrstu þremur mótum GSÍ í sumar.

Stóra stundin er á morgun fimmtudag en rétt fyrir klukkan hálf sjö að íslenskum tíma hefur Gulli leik á fyrsta hring í Opna bandaríska meistaramótinu, US Open. Með honum í ráshópi eru minna þekktir kylfingar frá Kólombíu og Japan, þeir Marcelo Rozo og Taihei Sato. Þeir hefja leik kl. 14.20 að staðartíma, 18.20 á íslenskum tíma.

Scheffler, Burns og Woodland í æfingahringnum.
Íslandshópur með Gulla.

US Open æfingadagur 17. júní 2026