Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gunnlaugur bætti sig en ekki nóg - hefur lokið leik á US open
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 19. júní 2026 kl. 22:04

Gunnlaugur bætti sig en ekki nóg - hefur lokið leik á US open

Gunnlaugur Árni Sveinsson lék annan hringinn á sjö höggum yfir pari á Shinnecock Hills vellinum á US Open í New York í dag. Hann endaði 36 holurnar á 21 höggi yfir pari og lék seinni hringinn mun betur en þann fyrri sem hann kláraði í morgun. Gulli hefur því lokið leik á erfiðasta risamóti atvinnumanna og er reynslunni ríkari.

Gulli lék fjórar holur í morgun til að ljúka fyrsta hringnum. Fljótlega eftir þær var hann mætttur á teig. Hann byrjaði illa, fékk tvöfaldan skolla og lék fyrri níu holurnar á sex yfir pari. Golfið varð betra eftir því sem leið á hringinn. Hann endaði 9. brautina og pari og með betri upphafshöggum kom betra skor og hann lék seinni níu holurnar á höggi yfir pari. Fékk fimm pör, einn fugl og tvo skolla, 77 högg.

Okkar maður mun setja þetta í reynslubankann. Hann hefði viljað leika betur. Upphafshöggin voru helsta ástæðan fyrir vandræðunum sem hann lenti í en Gulli er aðeins tvítugur og á framtíðina fyrir sér.

Staðan eftir 36 holur á US Open.