Guðmundur Ágúst lék á 69 höggum í Korpunni

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, kylfingur úr GR, er efstur eftir fyrsta keppnisdag í piltaflokki í öðru stigamóti á Arion-banka unglingamótaröðinni sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli.
Guðmundur Ágúst lék hringinn í dag á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari og hefur eins höggs forystu á Rúnar Arnórsson úr GK sem lék á 70 höggum. Guðni Fannar Carrico úr GR er svo þriðji á 71 höggi eða á pari.
Í telpnaflokki lék Sunna Víðisdóttir úr GR best en hún átti góðan dag og lék á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hún mun væntanlega berjast við Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur úr GK um sigurinn en Guðrún lék hringinn í dag á 76 höggum.
Í stelpnaflokki er Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR efst eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 85 höggum og hefur fimm högga forystu á Stefaníu Elsu Jónsdóttur úr GA.
Staða efstu kylfing í piltaflokki:
1 Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR 69 -2
2 Rúnar Arnórsson GK 70 -1
3 Guðni Fannar Carrico GR 71 par
4 Alexander Egill Guðmundsson GL 72 +1
5 Hjörleifur G Bergsteinsson GK 72 +1
Staða efstu kylfinga í telpnaflokki:
1 Sunna Víðisdóttir GR 73 +2
2 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 76 +5
3 Saga Ísafold Arnarsdóttir GK 84 +13
4 Anna Sólveig Snorradóttir GK 85 +14
5 Högna Kristbjörg Knútsdóttir GK 85 +14
Staða efstu kylfinga í stelpnaflokki:
1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 85 +14
2 Stefanía Elsa Jónsdóttir GA 90 +19
3 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 91 +20
4 Kolbrún Rut Olsen GK 102 +31
5 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 114 +43
Heildarstaðan í mótinu
Myndir/Kylfingur.is


