Fréttir

Guðrún Brá við toppinn eftir fyrsta hringinn
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Björgvin Sigurbergsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 17. nóvember 2020 kl. 14:12

Guðrún Brá við toppinn eftir fyrsta hringinn

Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK hóf í dag leik á Saudi Ladies Team International mótinu sem fer fram í Sádi Arabíu. Þetta er annað mótið í röð sem fer fram í landinu á Evrópumótaröð kvenna en leikið er á Royal Greens vellinum.

Keppnisfyrirkomulagið er með óhefðbundnu sniði en þrír atvinnukylfingar og einn áhugakylfingur leika saman í liði. Tvö bestu nettó skorin telja hjá hverju liði á hverri holu. Alls eru 36 lið í liðakeppninni en samhliða henni fer fram einstaklingskeppni hjá atvinnukylfingunum.

Guðrún Brá er í liðinu Team Lampert (Saudi Golf Fed3) og er hún þar með tveimur þýskum leikmönnum ásamt kylfingi frá Sádi Arabíu.

Guðrún Brá lék vel á fyrsta degi og kom inn á þremur höggum undir pari. Hún fékk alls fjóra fugla og einn skolla á hringnum og er þessa stundina jöfn í 3. sæti. Finnski kylfingurinn Sanna Nuutinen byrjaði best en hún er efst á 6 höggum undir pari.

Lið Guðrúnar er einnig í fínum málum en það er sem stendur í 6. sæti á 12 höggum undir pari.

Hér er hægt að sjá stöðuna í einstaklingskeppninni.

Hér er hægt að sjá stöðuna í liðakeppninni.