Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Pólverjinn vann tvöfalt á Dunhill Links í St. Andrews
Meronk með glæsilega verðlaunagripinn á Dunhill sem fagnaði 25 ára afmæli í ár. Mynd/Getty.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 4. október 2026 kl. 21:37

Pólverjinn vann tvöfalt á Dunhill Links í St. Andrews

Pólverjinn Adrian Meronk fagnaði sigri á Alfred Dunhill Links Championship sem lauk á hinum sögufræga Old Course í St. Andrews í Skotlandi í dag. Meronk lék frábært golf á lokahringnum og tryggði sér sinn fimmta sigur á DP mótaröðinni.

Meronk hóf lokahringinn tveimur höggum á eftir Suður-Afríkumanninum Casey Jarvis, sem hafði forystu eftir 54 holur. Pólverjinn byrjaði hins vegar af miklum krafti, fékk fugla á fyrstu tveimur holunum og jafnaði Jarvis fljótt í efsta sæti.

Meronk tók síðan forystuna á síðari níu holunum og lét hana ekki af hendi. Hann lauk mótinu á 20 höggum undir pari og tryggði sér þar með fyrsta sigur sinn á DP World Tour í tæp þrjú ár. Síðasti sigur hans á mótaröðinni var á Andalucía Masters árið 2023.

Sigurinn var Meronk greinilega mikils virði og tilfinningarnar báru hann ofurliði að leik loknum.

„Þetta er ótrúlegt. Ég græt nánast aldrei en þessi sigur er virkilega sérstakur,“ sagði hinn 33 ára gamli Meronk, sem lýsti jafnframt miklum létti eftir erfitt ár.

Daninn Niklas Nørgaard og Jarvis deildu öðru sætinu á 18 höggum undir pari, tveimur höggum á eftir Meronk, en Skotinn Michael Stewart varð fjórði á 17 undir. EnglendingurinnTommy Fleetwood lék lokahringinn á 64 höggum (-8) og endaði jafn í 3. sæti ásamt Michael Stewart á -17.

Meronk hafði raunar tvöfalda ástæðu til að fagna. Hann og Tom Chaplin, söngvari bresku hljómsveitarinnar Keane, sigruðu einnig í liðakeppni mótsins. Þeir léku samtals á 41 höggi undir pari og urðu einu höggi á undan David Law og Will Ahmed. Meronk varð þar með aðeins þriðji kylfingurinn í 25 ára sögu mótsins til að vinna bæði einstaklings- og liðakeppnina.

Alfred Dunhill Links Championship hefur sérstöðu á DP World Tour. Fyrstu þrír hringirnir eru leiknir á þremur af þekktustu links-völlum Skotlands, Old Course í St. Andrews, Carnoustie og Kingsbarns, áður en lokahringurinn fer fram á Old Course. Atvinnumennirnir leika jafnframt með áhugamönnum í sérstakri liðakeppni.

Sigurinn var sérstaklega viðeigandi fyrir Meronk en tíu ár eru síðan hann lék sitt fyrsta atvinnumannamót einmitt á Alfred Dunhill Links Championship.

Meronk varð fyrsti Pólverjinn til að vinna á DP mótaröðinni þegar hann sigraði á Irish Open 2022, fyrsti Pólverjinn til að leika á öllum fjórum risamótunum og fyrstur til að komast inn á topp 50 á heimslistanum.

Meronk er nú áfram skráður með þátttökurétt á DP World Tour þrátt fyrir að leika á LIV Golf; DP World Tour staðfesti sérstakt keppnisleyfi hans fyrir tímabilið 2026.