Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Haraldur höggi frá niðurskurði í Abu Dhabi
Haraldur í Abu Dhabi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 2. október 2026 kl. 07:49

Haraldur höggi frá niðurskurði í Abu Dhabi

Haraldur Franklín Magnús komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Abu Dhabi Challenge mótinu á Áskorendamótaröðinni.

Haraldur lék 36 holurnar á höggi undir pari, 71-68 höggum og var höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn í hitanum í Abu Dhabi en um 40 stiga hiti er á svæðinu núna.

Haraldur er í 148. sæti stigalistans fyrir mótið með 77,6 stig.

Haraldur sagði nýlega að líklega myndi hann minnka keppnisgolf og því er ekki vitað hvað liggur fyrir hjá eina íslenska karlkylfingnum á næst sterkustu mótaröðinni í Evrópu.