Bandaríkjamenn sýndu hvað í þeim býr og unnu Forsetabikarinn
Bandaríkjamenn björguðu andlitinu með frábærum lokaspretti í Forsetabikarnum og unnu Alþjóðaliðið 17-13 á Medinah vellinum í Chicago í gær. Ameríkanarnir rúlluðu yfir alþjóða strákana í tvímenningskeppninni á lokadeginum sem höfðu þriggja vinninga forskot fyrir síðustu viðureignina.
Bandaríkjamönnum hefur gengið illa í liðakeppnum að undanförnu og stóðu frammi fyrir því að vera undir í þeim öllum ef þeir hefðu tapað núna. Bandaríska Solheim liðið tapaði nýlega fyrir Evrópu og þá töpuðu bandarísku áhugamennirnir fyrir stuttu í Walker bikarnum. Í vor tapaði bandaríska karla og kvenna háskólaúrvalið gegn alþjóðaliðinu í Arnold Palmer bikarnum og Bandaríkjamenn urðu einnig undir í World Champions Cup. Þá má ekki gleyma að Bandaríkjamenn töpuðu Ryder bikarnum á heimavelli í fyrra fyrir Evrópumönnum. „Ég er orðinn þreyttur á að heyra að við getum ekki unnið liðakeppnir en við töpum öllum. Ég er mjög stoltur af strákunum,“ sagði Brant Snedeker, fyrirliði bandaríska Forsetaliðsins í gær eftir sigurinn á Alþjóðaliðinu.
Fyrirliðinn var gagnrýndur þegar útlitið var ekki gott fyrir lokadaginn núna í Forsetabikarnum. Þeir fengu rasskellingu í viðureignunum fyrir lokadaginn og töpuðu til dæmis tvisvar 0-5, í fjórmenningi. Það vakti líka mikla athygli þegar hann hvíldi Scottie Scheffler, besta kylfing heims í fjórmenningi á laugardag. Scheffler fór undan í flæmingi þegar hann var spurðu í lok móts hvernig það hafi verið að vera settur á bekkinn. „Getum við ekki rætt leikinn minn í dag“ (í tvímenningi sem hann vann) og var ekki sáttur við spurningu fréttakonunnar. En fyrirliðinn gerði ekki allt rangt því nýliðarnir komu sterkir inn í Forsetabikarnum, sérstaklega Jackson Koivun, en hann er aðeins 21 árs en talin verða næsta súperstjarna golfsins. Snedeker þakkaði Koivun sérstaklega fyrir frammistöðuna en annar ungur nýliði, Jacob Bridgeman gulltryggði sigur sinna manna.
Bandaríkjamenn hafa frá árinu 1994 aðeins tapað einu sinni í Forsetabikarnum, einu sinni hefur verið jafntefli, í hin skiptin hafa Bandaríkjamenn alltaf unnið.
Forsetabikarinn hefur alltaf verið í hálfgerðum skugga fyrir Ryder bikarnum en mótin eru haldin annað hvert ár.
Innáhöggið hjá Jackson í tvímenningnum sem tryggði honum sigurinn.
Jacob Bridgeman gulltryggði sigur sinna manna.
Allt það helsta frá lokadeginum.



