Fréttir

Guðrún og Valdís hefja leik í kvöld í Ástralíu
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
miðvikudaginn 26. febrúar 2020 kl. 18:00

Guðrún og Valdís hefja leik í kvöld í Ástralíu

Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK og Valdís Þóra Jónsdóttir GL hefja í kvöld og nótt leik á Women's NSW Open mótinu á Evrópumótaröð kvenna. Leikið er á Dubbo vellinum sem er staðsettur í Nýja Suður-Wales.

Valdís hefur leik klukkan 8:35 að staðartíma, sem er klukkan 21:35 að íslenskum tíma. Hún hefur á fyrstu holu og með henni í holli eru þær Jenna Hunter og Rosie Davies.

Guðrún hefur svo leik klukkan 12:45 að staðartíma, sem er 01:45 að íslenskum tíma. Hún leikur með þeim Koto Ishiyama og Robyn Doig og hefja þær leik á 10. holu.

Í síðustu viku léku þær báðar á Geoff King Motors Australian Ladies Classic mótinu en þá komust þær ekki í gegnum niðurskurðinn. Hægt verður að fylgjast með skori keppenda hérna.


Guðrún Brá Björgvinsdóttir.