Hægur Day eignast óvini
Ástralinn Jason Day hefur leikið frábært golf að undanförnu en hann hefur unnið seinustu tvö mót á PGA mótaröðinni og með því tilt sér á topp heimslistans í golfi. Þrátt fyrir ótrúlega takta þá eru ekki allir ánægðir með kappann.
Mörgum finnst Day vera gríðarlega hægur á golfvellinum en hann er þekktur fyrir að taka sér góðan tíma í hvert högg. Eftir mót helgarinnar missti fólk þolinmæðina og samfélagsmiðlarnir fylltust af tuði yfir leikhraða Day.
Samantekt af því helsta má sjá hér að neðan og spurning er hvort að PGA mótaröðin þurfi ekki að fara að fylgjast sérstaklega með kappanum og reka á eftir honum ef hann heldur áfram að vera svona lengi.





