Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Halldór og Alexander siguvegarar á Húsmótinu
Frá Garðavelli á Akranesi.
Sunnudagur 11. maí 2014 kl. 12:28

Halldór og Alexander siguvegarar á Húsmótinu

Alls tóku 63 kylfingar þátt í Húsmótinu sem fram fór í gær á Garðavelli á Akranesi í einstakri veðurblíðu. Halldór Hallgrímsson sigraði í punktakeppninni með 38 punkta og Alexander Högnason sigraði í höggleikskeppninni á 75 höggum. Gestir frá Dalvík og Akureyri tóku einnig þátt sem gestir og lék hinn 15 ára gamli Arnór Snær Guðmundsson úr GHD á pari vallar eða 72 höggum.  

Úrslit voru eftirfarandi:

Punktakeppni með forgjöf:
1. sæti: Halldór Hallgrímsson 38 punktar (19 punktar á seinni 9)
2. sæti: Hörður Kári Jóhannesson 38 punktar (17 punktar á seinni 9)
3. sæti: Rafnkell K. Guttormsson 38 punktar (16 punktar á seinni 9)

Örninn 2025
Örninn 2025

Besta skor án forgjafar:
Alexander Högnason 75 högg

Nándarverðlaun:
3. braut: Kristinn J. Hjartarson 1,34m
18. braut: Búi Vífilsson 3,22 m

 Verðlaun voru í boði verslunarinnar @home á Akranesi.