Hansína er kylfingur vikunnar

Hansína Þorkelsdóttir, kylfingur úr GKG, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún er 31 árs gömul og alin upp í Mosfellsbænum en býr núna í Vesturbæ Reykjavíkur og starfar í Arion banka. Hansína hefur bætt sig nokkuð í golfinu á undanförnum árum og hefur leikið á íslensku mótaröðinni undanfarin sumar. Við fengum hana til að svara nokkrum spurningum um golfið.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Hafði slegið nokkra bolta áður en ég sýktist alvarlega af golffíkninni árið 2005.“
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Prófaði nánast allt á yngri árum en entist mest í fótbolta og handbolta.“
Hver eru helstu markmiðin?
„Stöðug bæting í öllu, hvort sem það er golf eða annað sem ég tek mér fyrir hendur.
Helstu afrek í golfinu?
„Verð að segja að 2. sætið með GKG í Sveitakeppni GSÍ í ár.“
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Þegar ég þrísló boltann í sömu sveiflunni. Höggið varð 30 metra langt, í öfuga átt.“
Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Nei, en vonandi fer ég eitthvað næsta vor.“
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Styrkleiki eru drævin en veikleikinn er stutta spilið.“
Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir?
„John Daly og Guðbjartur Örn Gunnarsson.“
Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Klárlega í golfi.“
Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
„Enska hvað?“
Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
„Hef verið nálægt því já. Rás2 Open eitt árið í GKG, þar sem aukaverðlaun voru á nánast hverri braut. Á 17. holu sló ég boltann 0,5cm frá holu. Þá kom í ljós að það var eina par-3 holan þar sem ekki voru veitt nándarverðlaun.“
Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
„Guðbjartur Örn Gunnarsson.“
Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
„Birgir Leifur er bestur, hefur sannað það í sumar og Guðbjartur Örn Gunnarsson er mjög efnilegur.“
Hvað finnst þér skemmti- og leiðinlegast við golf?
„Skemmtilegast við golf eru ernir og fuglar, leiðinlegast eru sprengjur.“
Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
„Gleymi aldrei fyrstu golfferðinni minni erlendis. Fórum við þrjú frá Íslandi að keppa í BMW Golf Cup International í Phuket í Tælandi. Fengum Nick Faldo til að sýna okkur nokkur trix og spiluðum á flottum völlum ári eftir að flóðbylgjan skall á strendur Phuket.“
Fylgist þú mikið með golfi?
„Já eitthvað en með tilkomu SkjárGolf í vetur þá geri ég ráð fyrir að það muni aukast til muna.“
Staðreyndir:
Nafn: Hansína Þorkelsdóttir
Klúbbur: GKG
Forgjöf: 8,0
Golfpokinn: Callaway í öllum hólfum + Adams hybrid kylfa
Golfskór: Nike
Golfhanski: Nike
Markmið í golfinu: Stöðug lækkun á skori
Fyrirmynd: Elin Nordegren
Uppáhalds matur: Sushi
Uppáhalds drykkur: Vatn
Ég hlusta á: Allt
Besti völlurinn: Canyon Course, Blue Canyon Country Club
Besta skor (hvar): 74 Akureyri
Besta vefsíðan: www.vedur.is
Besta blaðið: Nýja krossgátublaðið
Besta bókin: Svona spila ég golf eftir Tiger Woods, bíð spennt eftir framhaldinu Svona spila ég með konur.
Besta bíómyndin: Karlar sem hata konur
Myndir/Kylfingur.is


