Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Haukadalsvöllur í flottu formi
Fjórða brautin er mjög flott.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 31. ágúst 2026 kl. 10:26

Haukadalsvöllur í flottu formi

Haukadalsvöllur sem er staðsettur nærri hverasvæðinu í Haukadal, vinsælasta ferðamannastaðar landsins, er einn af áhugaverðari 9 holu völlum landsins. Hann var opnaður 2006 og er því tuttugu ára og segja má að hann hafi elst vel.

Það hefur gengið á ýmsu á þessum fyrstu tveimur áratugum í sögu vallarins og um tíma var honum lokað og framtíð hans í óvissu en nú er hann í góðum höndum. Þegar ritstjóri kylfings lék hann í byrjun ágúst var hann í framúrskarandi ástandi og hefur líklega aldrei verið betri.

Brautir og sérstaklega flatir hafa verið í misjöfnu ástandi í gegnum tíðina, sérstaklega flatir en þær voru mjög góðar í sumar.

Þegar völlurinn var opnaður og fyrstu ár hans var hann frekar þröngur og ef boltinn fór út fyrir braut var hann týndur. Með tíð og tíma hafa brautir aðeins verið breikkaðar en það sem hefur líklega staðið vellinum aðeins fyrir þrifum hvað aðsókn varðar er erfiðleikastuðullinn. Meðalkylfingurinn og þeir sem eru byrjendur voru í talsverðum vandræðum með að halda bolta í leik.

Það sem stendur þó upp úr er magnað umhverfi vallarins í nágrenni hveranna Strokks og Geysis sem láta í sér heyra reglulega. Flestar brautir eru innrammaðar í grónu umhverfinu og svo koma árnar, Beiná og Almenningsá, skemmtilega inn í það.

Fyrsta braut vallarins er 400 metrar og því þarf tvö mjög góð högg til að komast inn á flöt í tveimur höggum. 2. braut er mjög áhugaverð par 5 hola þar sem þarf að slá yfir Almenningsá skammt frá flöt. Það er gaman að ganga yfir brúnna og hlusta á straumvatnið renna.

Á öllum næstu brautum nema níundu er áin í leik. Brautir 3 til 7 liggja fram og til baka meðfram ánni í glæsilegu umhverfi og eru mjög flottar golfholur. Fjórða brautin er par 3 og um 135 metrar. Flötin er nálægt ánni og það er gaman að slá af teignum. Sama má segja um næstu þrjár brautir. Þær eru ekki langar en skemmtilegar áskoranir.

Áttundi klúbbteigur karla er staðsettur þannig að slegið er yfir ána, upphafshöggið er blint, holan er skemmtileg og það þarf tvö góð högg til að komast inn á flöt. Níunda brautin er par 5 og endar uppi við klúbbhús.

Við hönnun vallarins var tekið tillit til náttúrunnar og umhverfisins. Lynggróður og birkikjarr setja svip sinn á völlinn ásamt ánum og þó að Haukadalsvöllur teljist í erfiðari kantinum þá er einstök upplifun að leika hann.

Völlurinn er tengdur við golfbox og því lítið mál að panta teigtíma og oftast er nóg pláss.

Önnur flötin, horft er upp eftir brautinni, Almenningsá er á milli en sést ekki vel á þessari mynd fyrir fallegum gróðri.

Þriðja brautin er fyrsta af fjórum sem liggja fram og til baka með Almenningsánni.

6. brautin er stutt par 4 en krefst nákvæmni. 

Par 3 brautirnar, 4. og 7. eru feikna góðar golfbrautir.