Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Tómas með annað draumahögg í sumar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 28. ágúst 2026 kl. 10:18

Tómas með annað draumahögg í sumar

Kylfingar eru misheppnir eða góðir en það er ekki algengt að fara holu í höggi tvisvar sama sumarið. Tómas Andri Bjartsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem fór holu í höggi á 2. braut í Grafarholti 21. júlí náði öðru draumahöggi 26. ágúst, rétt rúmum mánuði síðar.

Tómas var við leik á Álftanesi velli og náði þessu fína höggi á 1.holu, með 52 gráðu fleygjárni með léttu dragi á 118 metra. „Tvisvar á sama sumrinu, þetta verður ekki mikið sætara,“ sagði Tómas.