Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ný heimasíða hjá Golfklúbbi Suðurnesja
Föstudagur 28. ágúst 2026 kl. 09:17

Ný heimasíða hjá Golfklúbbi Suðurnesja

Golfklúbbur Suðurnesja hefur tekið í notkun nýjan og endurbættan vef á gs.is. Þar kemur fram að markmiðið með nýja vefnum sé að gera upplýsingar um starfsemi klúbbsins aðgengilegri og bæta upplifun félagsmanna, gesta og annarra sem sækja upplýsingar um GS og Hólmsvöll í Leiru.

Þar segir einnig: „Á vefnum má meðal annars finna upplýsingar um Hólmsvöll, rástíma, mótahald, félagsaðild, íþróttastarf, æfingaaðstöðu og þjónustu klúbbsins. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að kynna Hólmsvöll betur fyrir erlendum kylfingum og gestum sem heimsækja svæðið.

Nýi vefurinn er liður í áframhaldandi þróun á upplýsingagjöf og þjónustu Golfklúbbs Suðurnesja. Vefurinn verður áfram í þróun næstu vikur og því kunna að bætast við nýjar upplýsingar og útfærslur eftir því sem líður á.

Við hvetjum félagsmenn og aðra áhugasama til að kíkja á nýja vefinn og kynna sér það sem þar er að finna.

Við viljum jafnframt þakka Örvari Sigurðssyni og hans teymi fyrir frábæra aðstoð og gott samstarf við uppsetningu og innleiðingu nýja vefsins.“