Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Heimslisti karla: Champ og Perez báðir með risastökk
Cameron Champ.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 30. september 2019 kl. 16:09

Heimslisti karla: Champ og Perez báðir með risastökk

Heimslisti karla hefur verið uppfærður eftir mót helgarinnar og eru litlar breytingar á efstu mönnum. Xander Schauffele og Bryson DeChambeau fara báðir upp fyrir Francesco Molinari og eru nú í sætum níu og 10. Á meðan fellur Molinari niður í það 11.

Brooks Koepka er sem fyrr í efsta sætinu og hefur hann nú verið þar samfleytt í 20 vikur. Í heildina hefur verið á toppnum í 29 vikur. Aðeins 11 kylfingar hafa setið lengur á toppnum.

Sigurvegarar helgarinnar taka báðir risastökk. Cameron Champ sem fagnaði sigri á Safeway Open mótinu á PGA mótaröðinni var í 170. sæti fyrir helgina en er nú kominn í 70. sæti. Hann fór því upp um 100 sæti.

Victor Perez fagnaði sigri á Alfred Dunhill Links Championship mótinu á Evrópumótaröð karla. Fyrir helgina var hann í 184. sæti en hann fór upp um 112 sæti og situr nú í 72. sæti.

Svo sannarlega frábær árangur hjá báðum kylfingum. Heimslistann má svo skoða í heild sinni hérna.