Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Herbert sigraði í fyrsta sinn
Lucas Herbert hafði ástæðu til að fagna í gær þegar hann tryggði sér sinn fyrsta sigur á PGA mótaröðinni.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
mánudaginn 1. nóvember 2021 kl. 09:04

Herbert sigraði í fyrsta sinn

Ástralinn Lucas Herbert vann í gær sinn fyrsta sigur á PGA mótaröðinni þegar hann sigraði á Butterfield Bermuda Classic.

Aðstæður á Port Royal golfvellinum voru gríðarlega erfiðar í gær þar sem mikill vindur og rigning gerði keppendum erfitt fyrir.

Örninn 2025
Örninn 2025

Kanadamaðurinn Taylor Pendrith sem leiddi fyrir lokadaginn réði ekki við aðstæður og fékk ekki einn einasta fugl í gær og lék á 76 höggum. Við það féll hann niður í 5. sæti mótsins ásamt Scott Stallings. Stallings lék stórkostlegt golf í gær og átti langbesta hring dagsins 62 högg. 14 högga sveifla á milli þeirra Stallings og Pendrick í gær.

Sigurvegarinn Herbert lék öruggt golf og kom inn á 69 höggum, fékk fjóra fugla og tvo skolla. Það dugði til eins höggs sigurs en Patrick Reed sem sótti hart að efstu mönnum með frábærri spilamennsku í gær endaði í öðru sæti ásamt Danny Lee höggi á eftir Herbert. Reed lék á 65 höggum í gær sem var næst besti hringur dagsins.

Hinn 25 ára gamli Herbert tryggði sér með sigrinum þátttökurétt á PGA mótaröðinni til tveggja ára auk þess sem hann fær boð á Masters mótið í apríl.

Lokastaða mótsins