Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hinn litríki Bryson fékk víti fyrir að laga legu boltans
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 18. júlí 2026 kl. 16:48

Hinn litríki Bryson fékk víti fyrir að laga legu boltans

Bandaríkjamaðurinn litríki, Bryson Dechambeau, var vítaður um tvö högg á öðrum keppnisdegi. Í dómi yfirdómara mótsins, segir m.a. að Bryson hafi fengið víti fyrir að hafa bætt aðstæður á svæði fyrirhugaðrar sveiflu, óviljandi, á 5. holu þegar hann var að fara að leika sinn annað högg. Bryson hóf því leik þremur höggum á eftir efsta manni í stað þess að vera bara höggi á eftir Ástralanum Herbert.

Einhverjir kylfingar tjáðu sig um málið, m.a. Rory Mcilroy en sjá má hans álit hér að neðan.

En hér er dómurinn:

Bryson fékk tveggja högga víti fyrir að hafa óviljandi bætt aðstæður á svæði fyrirhugaðrar sveiflu sinnar, nánar tiltekið baksveiflunnar, á 5. holu þegar hann var að leika annað högg sitt.

Í grófum dráttum ætla ég að útskýra tæknilega hlið reglunnar. Regla 8.1 takmarkar það sem leikmanni er heimilt að gera til að bæta einhverjar af þeim vernduðu aðstæðum sem hafa áhrif á höggið, og það nær meðal annars til svæðisins fyrir fyrirhugaða sveiflu leikmannsins.

Að bæta aðstæður merkir því að breyta einni eða fleiri þeirra aðstæðna sem hafa áhrif á höggið þannig að leikmaðurinn geti haft hugsanlegt forskot við framkvæmd þess.

Ég vil leggja áherslu á að þetta á einnig við þegar athöfnin er óviljandi, eins og var raunin í tilfelli Brysons.

Svæði fyrirhugaðrar sveiflu nær yfir allt það svæði sem með eðlilegum hætti getur haft áhrif á einhvern hluta baksveiflunnar, niðursveiflunnar eða eftirfylgni sveiflunnar við fyrirhugað högg. Mikilvægt er að benda á að leikmanni er óheimilt að hreyfa, beygja eða brjóta nokkurn náttúrulegan hlut sem vex eða er fastur við jörð.

Leikmanni er heimilt að taka sér eðlilega stöðu með því að grípa til sanngjarnra aðgerða til að komast að boltanum og taka sér leikstöðu, jafnvel þótt það geti í sumum tilvikum bætt aðstæður sem hafa áhrif á höggið. Við það verður leikmaðurinn þó að velja þá leið sem raskar umhverfinu sem minnst miðað við aðstæður og á ekki rétt á eðlilegri stöðu eða eðlilegri sveiflu ef aðstæður leyfa það ekki.

Ég vil ítreka að þessi regla gildir jafnvel þótt leikmaður hafi enga ásetningu um að bæta aðstæðurnar, eins og átti við í tilfelli Brysons.

Grant Moir
Yfirdómari, The Open