Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Hjónin á Hellu hætt eftir 21 ár
Síðasta stjórn GHR, Óskar og Katrín í fremri röð til vinstri.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 29. október 2021 kl. 15:36

Hjónin á Hellu hætt eftir 21 ár

Stórtíðindi urðu á aðalfundi Golfklúbbsins Hellu þegar hjónin Óskar Pálsson, formaður GHR og Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir, gjaldkeri, bæði til 21 árs, gáfu ekki kost á sér til stjórnarstarfa.  Nýr formaður er Guðmundur Ágúst Ingvarsson og nýr gjaldkeri er Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir aðrir stjórnarmenn gáfu kost á sér áfram.

Formaður las skýrslu stjórnar og fór yfir það helsta sem gerst hafði á árinu, þakkaði starfsfólki, stjórn og nefndarmönnum fyrir vel unnin störf á árinu og bauð nýja menn velkomna. 

Örninn 2025
Örninn 2025

Ný stjórn GHR: 

Formaður: Guðmundur Ágúst Ingvarsson Varaformaður: Einar Long
Gjaldkeri: Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir Ritari: Bjarni Jóhannsson Meðstjórnandi: Guðný Rósa Tómasdóttir 

1. varamaður: Guðlaugur Karl Skúlason. 2. varamaður: Friðrik Sölvi Þórarinsson.

Fréttamenn kylfings.is heimsóttu hjónin á Strandarvöll árið 2015 og sjá má það innslag hér að neðan.

Nýr stjórn GHR. Formaðurinn Guðmundur Ágúst Ingvarsson er í fremri röð til vinstri.