Hrafnkell Kristjánsson er kylfingur vikunnar
Hrafnkell Kristjánsson, íþróttafréttamaður á Ríkisútvarpinu, er kylfingur vikunnar að þessu sinni og tekur hann við keflinu af Henrý Birgi Gunnarssyni eins og sést hér á myndinni til hægri. Hann er 34 ára Hafnfirðingur og er með BA próf í sálfræði frá University of South Alabama. Hann er liðtækur kylfingur og er með um 8.9 í forgjöf.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Ég greip fyrst í kylfu um 12 ára aldur á námskeiði hjá Arnari Má Ólafssyni í GK en fór ekki að spila fyrr en 3-4 árum síðar og hef verið veikur síðan. Golfbakterían grasseraði sérstaklega í Alabamahitanum og hefur ekki verið í nokkurri rénun síðan.“
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Ég spilaði fótbolta með FH langt fram á þrítugsaldurinn og lék með yngri landsliðum. Náði líklega aldrei að verða meira en efnilegur. Ég var líka í handbolta upp að meistaraflokki en framtíðin var ekki þar svo klístrið hefur ekki verið notað síðan.“
Hver eru helstu markmiðin?
„Að verða betri...á öllum sviðum!“
Helstu afrek í golfinu?
„Mér hefur tekist að fara holu í höggi. Það var á 7. holu í Kiðjabergi, árið 2000, meðan völlurinn var 9 holu völlur. Spilaði með pabba sem varð sennilega spenntari en ég yfir högginu sem slegið var með 9 járni.“
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Veit ekki hvort það var svo neyðarlegt en í sumar spilaði ég með félaga mínum á Hvaleyrinni. Stóð á 10. teig og sagði félaganum nákvæmlega hvernig ég ætlaði að slá með 8. járni af efsta pallinum í smá „draw“, láta boltann lenda efst í brekkunni og rúlla niður að pinnanum sem var niðri í dældinni vinstra megin. Ég dró boltann heldur mikið og hann lenti í flatarkanti og spýttist „out of bounds“. Tók 8. járnið aftur, sló nákvæmlega eins og ég sagðist ætla að gera í fyrstu tilraun og bjargaði PARI!! Það var frekar þreytt par! En gott.“
Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Ég geri ekki ráð fyrir að fara en langar alltaf. Hef farið tvisvar til Englands en langar að prófa Spán.“
Hvað ætlar þú að gera til að lækka forgjöfina næsta sumar?
„Láta loks verða af því að taka kylfurnar úr geymslunni yfir vetrartímann og æfa eitthvað í vetur. Félagar mínir tveir sem eru að byrja í golfi hafa platað mig til að mæta með þeim formerkjum að ég kenni þeim eitthvað líka. Ég vona að þeir græði eitthvað á því líka!“
Hver er uppáhaldskylfingurinn og af hverju?
„Ég hef alltaf verið svolítill Nick Faldo maður. Hann var góður á sínum tíma og ekki versnaði svo þegar ég hitti hann og komst að því að hann er miklu meiri næs gæi en leit oft út fyrir á golfvellinum.“
Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
„Ég kann ágætlega við reglurnar eins og þær eru og hef ekki löngun til að hrófla mikið við þeim. Ég er frekar íhaldssamur þegar kemur að reglum í íþróttum. Finnst þær hafi sannað sig ágætlega á löngum tíma.“
Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Fyrst að atvinnumennskan bankaði ekki upp á í fótboltanum þá er held ég meiri séns á atvinnumannsferli í golfi, þó ég gangi ekki með þann draum í vasanum. Hann er heldur langsóttur!“
Spurning frá síðasta kylfing vikunnar (Henrý Birgi Gunnarssyni): Finnst þér Hlynur Geir Hjartarson vera sexy þó svo hann sé ekki með strípur lengur?
„Það voru ekki strípurnar sem gerðu Hlyn Geir sexý. Hann er toppmaður og ég naut þess að fá að spila með honum einu sinni í Grafarholtinu í sumar. Fyrir það heldur hann mójóinu í mínum augum.“
Staðreyndir:
Nafn: Hrafnkell Kristjánsson
Klúbbur: Dett inn og út úr GK milli ára og eftir því sem vindur blæs.
Forgjöf: 8,9 eins og er
Golfpokinn: Callaway X-22 járn pw-4, McGregor 54° fleygjárn, Cleveland 56°fleygjárn, Cleveland hybrid 19°, Ping pútter, Callaway FT5 driver, Callaway Big Bertha 3-tré.
Golfskór: ECCO
Golfhanski: Ekki merkjafrík þar og á alls konar tegundir
Markmið í golfinu: Gera betur en síðast
Fyrirmynd: Allir góðir kylfingar
Uppáhalds matur: Grillaður hreindýravöðvi er snilld
Uppáhalds drykkur: Kók og kranavatn
Ég hlusta á: Eðlisávísunina og flestar tegundir tónlistar
Besti völlurinn: Hvaleyri, Grafarholt og Kiðjaberg á Íslandi, Donnington Grove (ENG) og Magnolia Grove (Alabama, USA)
Besta skor (hvar): 75 á Hvaleyri og Urriðavelli
Besta vefsíðan: youtube.com
Besta blaðið: Síðustu þrjú blöðin á WC rúllunni eru „lifesavers“
Besta bókin: Golf is not a game of perfect (Bob Rotella) og margar aðrar en nú er ég svo golfgíraður að þessi kemur fyrst upp í hugann.
Besta bíómyndin: Shawshank Redemption skorar hátt sem og Usual Suspects en þær eru svo miklu, miklu fleiri sem gætu komist á topplistann.


