Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Icelandir Golfers og Golfklúbburinn Keilir gera samstarfssamning
Föstudagur 6. maí 2011 kl. 13:56

Icelandir Golfers og Golfklúbburinn Keilir gera samstarfssamning

Golfklúbburinn Keilir og Icelandair Golfers hafa gert með sér samstarfssamning til tveggja ára. Icelandair Golfers verða styrktaraðili að fyrsta opna mótinu á Hvaleyrarvelli næstu tvö árin og mun það bera nafnið Opna Icelandair Golfers. Golfklúbburinn Keilir mun veita félagsmönnum Icelandair Golfers sérkjör á vallargjöldum á Sveinskotsvelli, sem og á boltakortum í Hraunkoti sem er að margra mati besta golfæfingasvæði landsins.

Þorvarður Guðlaugsson, svæðisstjóri íslenska sölusvæðis Icelandair og Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis undirrituðu samninginn í höfuðstöðvum Icelandair í dag.

Við höfum unnið markvisst að uppbyggingu Icelandair Golfers undanfarin tvö ár og erum ánægðir að ná samkomulagi við einn stærsta klúbb landsins um betri kjör fyrir félagsmenn Icelandair Golfers. Það er ánægjulegt fyrir okkur að vera bakhjarlar fyrsta opna móts ársins á Hvaleyrarvelli, sem hefur að flestra mati verið besti 18 holu völlur landsins undanfarin ár,“ sagði Þorvarður

Við höfum unnið markvisst í vetur að fá til liðs við okkur trausta styrktaraðila, með þessum samningi eru endurnýjuð gömul kynni, en hér á árum áður var Opna Flugleiðamótið fastur liður í starfi Keilis. Opna Icelandair Golfers verður fyrsta af mörgum glæsilegum golfmótum sem við höldum á Hvaleyrinni í sumar,“ sagði Ólafur Þór af þessu tilefni.

Mynd: Þorvarður Guðlaugsson og Ólafur Þór Ágústsson handsala samninginn.