Íslandsbankamótaröðin: Undanúrslitin klár í Íslandsmótinu í holukeppni | Helga Kristín sigraði í flokki 19-21 árs
Nú eru undanúrslitin klár fyrir Íslandsmótið í holukeppni á Íslandsbankamótaröðinni. Mótið fer fram á Hústóftavelli hjá Golfklúbbi Grindavíkur. Samtals hófu 130 leik í gær og var leikinn höggleikur í öllum flokkum til þess að raða krökkum niður í sæti og komust í mesta lagi 16 áfram í hverjum flokki.
16 og 8 manna úrslit voru leikin í dag og eru því undanúrslitin klár. Undanúrslitin verða leikin í fyrramálið og svo fara úrslitaleikirnir fram eftir hádegi.
Einum flokki er þó lokið, en í flokki kvenna 19-21 árs hafði Helga Kristín Einarsdóttir úr GK betur gegn Laufeyju Jónu Jónsdóttir, GS, 5/4.
Öll úrslit úr mótinu má sjá hérna.
Undanúrslitaleikirnir eru eftirfarandi: