Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Íslandsmótið í höggleik: Saga og Hulda byrjuðu best
Saga Traustadóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
fimmtudaginn 8. ágúst 2019 kl. 19:04

Íslandsmótið í höggleik: Saga og Hulda byrjuðu best

Saga Traustadóttir, GR, og Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, fóru best af stað í kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik sem hófst í dag á Grafarholtsvelli. 

Báðar eru þær á tveimur höggum undir pari en skorkort þeirra var keimlíkt. Til að mynda fengu þær báðar örn á hringnum, Hulda á fjórðu holu og Saga á 12. holu.

Örninn 2025
Örninn 2025

Ríkjandi Íslandsmeistari, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, er í þriðja sæti á höggi undir pari. Guðrún Brá var í stuði á fyrri níu en hún fékk þrjá fugla á holum 3-7.

Berglind Björnsdóttir og Nína Björk Geirsdóttir eru jafnar í fjórða sæti á tveimur höggum yfir pari. Berglind var í fínum málum eftir 14 holur á höggi undir pari en fékk svo þrefaldan skolla á 15. holu.

Annar hringur mótsins fer fram á morgun, föstudag, og verður þá skorið niður í kvennaflokki.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.


Skorkort efstu kylfinga mótsins.