Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Íslensku landsliðin standa í ströngu á EM í vikunni
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
þriðjudaginn 6. júlí 2021 kl. 14:37

Íslensku landsliðin standa í ströngu á EM í vikunni

Eftir fá verkefni á síðasta ári vegna Covid 19 er nú loksins farið að rofa til hjá landsliðum Íslands í golfi. Ólafur Loftsson Afreksstjóri Golfsambandsins valdi fyrir nokkru liðin sem hefja leik í þessari viku á Evrópumótum landsliða.

Liðin leika á fjórum mismunandi stöðum í Evrópu. Kvennalandsliðið, karlalandsliðið og stúlknalandsliðið hefja öll leik í dag en piltalandsliðið á morgun.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Kvennalandsliðið keppir á hinum sögufræga Royal County Down velli í Norður Írlandi. Lið Íslands skipa eftirtaldir kylfingar: Andrea Bergsdóttir, Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir.

Hægt er að fylgjast með kvennalandsliðinu hér 

Karlalandslið Íslands leikur á Spáni á PGA Catalunya vellinum sem er mörgum íslenskum kylfingum að góðu kunnur.

Lið Íslands skipa eftirtaldir kylfingar: Aron Snær Júlíusson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Hákon Örn Magnússon, Hlynur Bergsson, Kristófer Karl Karlsson og Sverrir Haraldsson.

Hér má fylgjast með karlalandsliðinu

Stúlknalandsliðið keppir á Montado Golf Resort í Portúgal.

Lið Íslands skipa eftirtaldir kylfingar: Berglind Erla Baldursdóttir, Helga Signý Pálsdóttir, Katrín Sól Davíðsdóttir, María Eir Guðjónsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Sara Kristinsdóttir.

Hér má fylgjast með stúlknalandsliðinu

Piltalandsliðið leikur í Eistlandi á Estonian G&CC vellinum og hefur ekki leik fyrr en á morgun eins og áður segir.

Lið Íslands skipa eftirtaldir kylfingar: Aron Ingi Hákonarson, Bjarni Þór Lúðvíksson, Björn Viktor Viktorsson, Böðvar Bragi Pálsson, Dagur Fannar Ólafsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson.

Hér má fylgjast með piltalandsliðinu

Spennandi verður að fylgjast með okkar frábæru kylfingum og óskar kylfingur.is þeim góðs gengis.