Íslensku stelpurnar eru allar í topp 20
Ragnhildur Kristinsdóttir sem var með foyrstu eftir fyrsta daginn á Santander mótinu á LETAS mótaröðinni á Spáni átti erfiðan annan dag og féll niður í 19. sæti. Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru í 14. og 19. sæti.
Ragnhildur náði greinilega ekki að spila „frjálst“ golf eins og hún gerði fyrsta daginn og kom inn á fjórum yfir pari 18 holurnar í dag. Hún er nú jöfn í 19. sæti á -2.
Hulda Clara er jöfn í 14. sæti á -3. Hún lék á höggi undir pari 18 holurnar í öðru hring. Hulda var þrjá yfir pari eftir 9 holur en fékk 3 fugla, einn skolla og endaði 18. holuna á erni.
Andrea Bergsdóttir er eins og Ragga jöfn í 19. sæti. Hún lék á parinu í öðrum hring. Hún byrjaði með látum og var 3 undir pari eftir 5 holur en lék restina á tveimur höggum yfir pari.


