Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Jarrod Lyle heiðraður af PGA
Miðvikudagur 2. desember 2015 kl. 13:43

Jarrod Lyle heiðraður af PGA

Jarrod Lyle varð í gær annar kylfingurinn til að vera heiðraður með hugrekkis verðlaunum PGA. Lyle hefur barist við hvítblæði undanfarin ár en hann hefur tvisvar sinnum þurft að kveðja golfið vegna baráttu sinnar við sjúkdóminn.

Lyle var fyrst greindur með hvítblæði árið 1999 en eftir langa baráttu tókst honum að vinna bug á veikindunum. Hann vann sér inn þátttökurétt á PGA mótaröðinni árið 2007. Hann átti svo sína bestu byrjun tímabilið 2012 en á því ári var hann aftur greindur með hvítblæði.

Lyle sneri aftur á golfvöllinn á þessu ári en hann mun þurfa að leika vel á þessu tímabili til þess að halda þátttökurétt sínum á mótaröðinni.

Erik Compton var sá fyrsti til að vinna þessi verðlaun á seinasta ári en þau komu í staðinn fyrir verðlaunin fyrir endurkomu ársins.