Jarrod Lyle snýr aftur á PGA mótaröðina
Jarrod Lyle er einn þeirra sem bíður spenntur eftir því að 2015-2016 tímabilið hefjist á morgun. Lyle er nefnilega meðal þátttakenda á Frys.com mótinu sem er fyrsta mót nýja tímabilsins.
Lyle sem er 34 ára hefur tvisvar sinnum verið greindur með hvítblæði. Eftir að hafa farið í gegnum meðferð snéri Lyle aftur í golfið í fyrra en átti í erfiðleikum með að finna leik sinn. Hann komst varla í gegnum niðurskurð og ákvað því að snúa aftur heim til Ástralíu til þess að æfa.
„Ég hef verið mikið í ræktinni, fimm daga í viku til þess að koma líkamanum í stand“ sagði Lyle sem einnig hefur leikið mikið í minni mótum í Ástralíu til að undirbúa sig.
Lyle á 10 mót eftir af frestuðum þátttökurétt sínum á mótaröðinni og þarf að þéna um 25 milljónir króna í þeim til þess að fá fullan þátttökurétt fyrir 2015-2016 tímabilið. Hann mun leika með þeim Ricky Barnes og John Huh í ráshóp fyrstu tvo dagana á Silverado vellinum þar sem Frys.com mótið fer fram.


