Golfhöllin
Golfhöllin

Fréttir

Jökull vann 5. deildina
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
þriðjudaginn 22. ágúst 2023 kl. 17:00

Jökull vann 5. deildina

Íslandsmót golfklúbba í 5. deild karla 2023 fór fram dagana 18.-20. ágúst á Silfurnesvelli á Höfn í Hornafirði. Alls tóku sjö golfklúbbar þátt.

Golfklúbburinn Jökull frá Ólafsvík sigraði Golfklúbb Hornafjarðar í úrslitaleiknum um sæti í 4. deild að ári. Golfklúbbur Álftaness varð í þriðja sæti.

Örninn 2025
Örninn 2025

Golfklúbbur Álftaness lék gegn Golfklúbbi Hornafjarðar í undanúrslitum, og Golfklúbburinn Jökull lék gegn Golfklúbbi Hamars á Dalvík í hinum undanúrslitaleiknum.

A-riðill, lokastaða:

1. Golfklúbbur Álftaness, GÁ
2. Golfklúbburinn Hamar, Dalvík, GHD
3. Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs, GFH

B-riðill, lokastaða:

1. Golfklúbburinn Jökull, GJÓ
2. Golfklúbbur Hornafjarðar, GHF
3. Golfklúbburinn Vík, GKV
4. Golfklúbburinn Dalbúi, GKD