Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Kiðjaberg opnar 1. mai
Myndirnar teknar í gær 15. apríl.
Fimmtudagur 16. apríl 2015 kl. 14:00

Kiðjaberg opnar 1. mai

Vellir landsins eru nú óðum að komast í sumarhorf og bíða nú bara opnunar. Þessi frétt er tekin af heimasíðu Golfklúbbs Kiðjabergs og þar á bæ eru menn nú í óðaönn að gera völlinn kláran fyrir sumarið.

Vorverkin eru komin á fullt í Kiðjabergi eftir frekar erfiðan vetur. Völlurinn kemur þokkalega undan vetri. Flatir og teigar líta vel út, búið er að bera á  fyrstu áburðargjöf.  Lítið frost er í brautum og reiknum við með að hefja völtun á flötum í næstu viku ef veður verður eins og spáð er næstu daga. Eins og staðan er nú reiknum við með að opna völlinn 1. maí.

Skemmdir eru áfram í 4. og 5. braut eins og var eftir veturinn 2013 – 2014 og verður hafist handa við að lagfæra þær eins og kostur á næstu vikum.

Vorfuglarnir eru komir; Tjaldurinn og þrestirnir eru mættir við gamla bæinn, hrossagaukurinn er farinn að láta í sér heyra og lóan á vappi við 17. flöt.

Búið er að vinna í vélum og tækjum og eru þau að mestu klár fyrir væntanleg átök sumarsins. Klúbburinn fjárfesti í vor í Verti drain vél til að gata flatir, teiga og brautir. Með þeim kaupum má segja að klúbburinn eigi orðið öll helstu tæki sem þarf til að hald úti jafn glæsilegum velli eins og við höfum hér í Kiðjabergi.

Skráning hópa á völlinn er í fullum gangi. Allt útlit er fyrir að fjöldi þeirra sem koma til með að spila völlinn með litlum vinnuhópum og jafnframt í stórum boðsmótum verði heldur fleiri en á liðnu sumri. Þó er enn pláss fyrir fleiri hópa og fer skráning fram á[email protected].

Rakel Þóra Mattíasdóttir, sem rekur skálann í sumar,  kemur á svæðið í lok maí og hefur strax undirbúning að opnun skálans. Skoða má matseðil hennar á  heimsíðu okkar undir golfskálinn eða  á þessari slóð. http://www.gkb.is/files/matsedill_kidjaberg_02.pdf