Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Kristján Þór leiðir með tveimur höggum
Laugardagur 1. september 2012 kl. 19:56

Kristján Þór leiðir með tveimur höggum

Kristján Þór Einarsson úr Keili fer með tveggja högga forystu inn í lokahringinn í Síma mótinu á..

Kristján Þór Einarsson úr Keili fer með tveggja högga forystu inn í lokahringinn í Síma mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fer á Grafarholtsvelli. Kristján Þór er samtals á 144 höggum eða tveimur höggum yfir pari eftir fyrstu tvo hringina í mótinu.

Kristján lék fyrri hring dagsins á 69 höggum en þann síðari á 75 höggum. Hann er tveimur höggum á undan Hlyni Geir Hjartarsyni úr GOS sem vermir annað sætið. Þeir Magnús Lárusson úr GKJ og Einar Haukur Óskarsson úr Keili eru jafnir í þriðja sæti á samtals 147 höggum eða fimm höggum yfir pari.

Bjarki Pétursson úr GB lék best á öðrum hring en hann lék á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari. Hann bætti sig um tíu högg frá því á fyrsta hring og lyfti sér upp í 5.-6. sæti. Aðstæður voru erfiðar í dag en talsverð rigning gerði kylfingum erfitt fyrir. Lokahringurinn fer fram á morgun.

Staða efstu kylfinga í karlaflokki:
1. Kristján Þór Einarsson, GK 69-75=144 +2
2. Hlynur Geir Hjartarson, GOS 75-71=146 +4
3.-4. Magnús Lárusson, GKJ 72-75=147 +5
3.-4. Einar Haukur Óskarsson, GK 71-76=147 +5
5.-6. Þórður Rafn Gissurarson, GR 73-75=148 +6
5.-6. Bjarki Pétursson, GB 79-69=148 +6
7. Kjartan Dór Kjartansson, GKG 75-74=149 +7
8. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG 76-74=150 +8
9.-11. Andri Már Óskarsson, GHR 78-74=152 +10
9.-11. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG 78-74=152 +10
9.-11. Birgir Guðjónsson, GR 80-72=152 +10

Nánari staða í mótinu má finna hér.