Fréttir

Kristófer og Nína klúbbmeistarar GM 2020
Kristófer Karl Karlsson og Nína Björk Geirsdóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 5. júlí 2020 kl. 21:05

Kristófer og Nína klúbbmeistarar GM 2020

Meistaramóti Golfklúbbs Mosfellsbæjar lauk á laugardaginn við flottar aðstæður á Hlíðavelli. Í kvennaflokki varð Nína Björk Geirsdóttir klúbbmeistari og í karlaflokki varð Kristófer Karl Karlsson klúbbmeistari eftir mikla dramatík.

Nína Björk lék hringina fjóra samtals á 8 höggum undir pari og varð að lokum 38 höggum á undan næsta keppenda sem var Arna Rún Kristjánsdóttir. Nína lék best á öðrum keppnisdegi þegar hún kom inn á höggi undir pari en hún lék svo á parinu á lokahringnum.

Þetta er þriðja árið í röð sem Nína Björk verður klúbbmeistari Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Nöfnurnar Katrín Sól og Katrín Dögg enduðu svo jafnar í þriðja sæti.

Úrslit í meistaraflokki kvenna:

1. Nína Björk Geirsdóttir, 76, 71, 77, 72 =+8
2. Arna Rún Kristjánsdóttir, 81, 82, 79, 92 = +46
3. Katrín Sól Davíðsdóttir, 84, 78, 89, 88 = +51
3. Katrín Dögg Hilmarsdóttir, 79, 81, 88, 91 = +51

Í karlaflokki enduðu þeir Sverrir Haraldsson og Kristófer Karl jafnir eftir fjóra hringi á 4 höggum yfir pari í heildina. Grípa þurfti til umspils þar sem Kristófer hafði að lokum betur og varð því klúbbmeistari þetta árið.

Fjórir kylfingar deildu þriðja sætinu einungis tveimur höggum á eftir þeim Kristófer og Sverri en það voru þeir Björn Óskar Guðjónsson, Ingi Þór Ólafson, Kristján Þór Einarsson og Aron Skúli Ingason.

Úrslit í meistaraflokki karla:

1. Kristófer Karl Karlsson, 71, 69, 76, 76 = +4
2. Sverrir Haraldsson, 74, 71, 72, 75 = +4
3. Björn Óskar Guðjónsson, 80, 70, 75, 69 = +6
3. Ingi Þór Ólafson, 76, 68, 78, 72 = +6
3. Kristján Þór Einarsson, 74, 68, 78, 74 = +6
3. Aron Skúli Ingason, 69, 75, 75, 75 = +6

Hér er hægt að sjá úrslit í öllum flokkum.

View this post on Instagram

Klúbbmeistari GM 2020’🏆

A post shared by Kristófer Karl Karlsson (@kristo8) on