Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Kvennaflokkurinn aldrei verið sterkari
Hulda Clara, Íslandsmeistari 2021.
Föstudagur 29. júlí 2022 kl. 07:00

Kvennaflokkurinn aldrei verið sterkari

Metfjöldi er í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi 2022 sem fram fer í Eyjum 4.-7. ágúst, eða 44 keppendur alls. Hlutfall kvenna hefur aldrei verið hærra eða 29%.

Frá árinu 2001 hefur meðalfjöldi keppenda í kvennaflokki verið 26 eða 18% af heildarfjölda keppenda. Keppendafjöldinn í kvennaflokki í ár er 54% yfir meðaltali síðustu ára. Alls eru fjórir fyrrum Íslandsmeistarar á meðal keppenda og þar af tveir atvinnukylfingar. 

Örninn 2025
Örninn 2025

Þórdís Geirsdóttir, GK, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,GR, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, og Hulda Clara Gestsdóttir, GKG hafa allar upplifað að sigra á Íslandsmótinu. Þórdís vann árið 1987 eða fyrir 35 árum og Hulda Clara hefur titil að verja en hún sigraði í fyrsta sinn í fyrra á Jaðarsvelli á Akureyri. Ólafía Þórunn hefur þrívegis sigrað, fyrst árið 2011, 2014 á Leirdalsvelli og 2016 á Jaðarsvelli á Akureyri. Guðrún Brá sigraði þrjú ár í röð, 2018 í Eyjum, 2019 á Grafarholtsvelli og 2020 í Mosfellsbæ. 

Mótið í ár er því eitt það allra sterkasta þar sem flestir af forgjafarlægstu kylfingum landsins í kvennaflokki eru á meðal keppenda. 

Það er að miklu að keppa fyrir atvinnukylfingana þar sem að verðlaunaféð fyrir Íslandsmeistaratitil hjá atvinnukylfingum er 500 þúsund kr. 

Þórdís er elsti keppandinn í kvennaflokki, 57 ára, en hún fagnaði sínum áttunda Íslandsmeistaratitli í röð fyrr í þessum mánuði á Íslandsmóti eldri kylfinga, 50 ára og eldri. Ólafía er 30 ára og hún er sjöundi elsti keppandinn í kvennflokki og Guðrún Brá, sem er 28 ára, er í 10. sæti á þeim lista. 

Yngstu keppendurnir í kvennaflokki eru 14 ára og fæddar árið 2008. Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, sem lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni nýverið er yngst ásamt Völu Maríu Sturludóttur, frá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. 

Meðalforgjöfin í kvennaflokknum er 2,2. Lægsta forgjöfin er +5.2 en Guðrún Brá er með lægstu forgjöfin +5,2. Alls eru 10 keppendur í kvennaflokknum með 0 eða lægra í forgjöf. 

Frétt af golf.is