Landsmót í golfhermum 2022
20. mars frá kl. 11:30 í Íþróttamiðstöð GKG
Úrslitakeppni Landsmóts í golfhermum 2022 fer fram á morgun, sunnudag, í Íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Fyrri umferðin hefst klukkan 11:30 og hin síðari klukkan 15:00 og verður hún í beinni útsendingu í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.
Þetta er í fyrsta sinn sem Landsmót er haldið í golfhermum hér á landi. Kylfingur verður á staðnum og gerir mótinu skil.
Fyrri undankeppnin var leikin frá 14. janúar til 14. febrúar sl. og seinni undankeppnin frá 15. febrúar til 14. mars sl. Átta efstu kylfingarnir í undankeppnunum í karla- og kvennaflokki komust áfram í úrslitakeppnina. Hægt var að taka þátt í keppninni í hvaða TrackMan hermi sem er sem bauð upp á möguleika á að pútta, hvar sem er í heiminum.
Í úrslitakeppninni eru leiknar 36 holur. Fyrri umferð hefst klukkan 11:30 og seinni umferð klukkan 15:00.
Stöð 2 Sport sýnir beint frá seinni umferðinni í opinni dagskrá.
Fyrri umferð:
Karlaflokkur
Gísli Sveinbergsson, GK
Steinn Baugur Gunnarsson, NK
___
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG
Kristófer Orri Þórðarson, GKG
___
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Aron Emil Gunnarsson, GOS
___
Ólafur Marel Árnason, GKG
Heiðar Snær Bjarnason, GOS
Kvennaflokkur
Berglind Erla Baldursdóttir, GM
Hekla Ingunn Daðadóttir, GM
___
Saga Traustadóttir, GKG
María Eir Guðjónsdóttir, GM
___
Katrín Sól Davíðsdóttir, GM
Sara Kristinsdóttir, GM
___
Karen Lind Stefánsdóttir, GKG
Eva Kristinsdóttir, GM
Kylfingum verður raðað eftir skori í seinni umferð.
___
Því miður er ekki mögulegt að hleypa áhorfendum inn í keppnissalinn vegna þrengsla.
___
Keppt verður um titilinn Landsmeistari í golfhermum í kvenna og karlaflokki. Landsmeistarar hljóta farandbikar til eins árs.
Þá verða peningaverðlaun veitt fyrir efstu þrjú sætin:
1. sæti: 100.000 kr.
2. sæti: 50.000 kr.
3. sæti: 30.000 kr.


