Fréttir

Langar þig að verða golfkennari?
Ert þú næsti Butch Harmon?
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
fimmtudaginn 30. desember 2021 kl. 19:14

Langar þig að verða golfkennari?

Stjórn PGA á Íslandi hefur opnað fyrir umsóknir í golfkennaranám. Stefnt er að því að hefja nám síðla vors 2022. 

Nákvæm dagskrá ásamt inntökuskilyrðum og skólagjöldum liggur ekki fyrir að svo stöddu en upplýsingar munu liggja fyrir í lok janúar.

Með umsókninni þurfa að fylgja eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn
  • Kennitala
  • Póstfang
  • Golfklúbbur
  • Forgjöf
  • Reynsla af golfíþróttinni

Engar kvaðir eru gerðar um að hefja nám þrátt fyrir að umsókn verði samþykkt.

Áhugasamir eru beðnir um að setja sig í samband við [email protected]. Frestur er til og með 20. Janúar, 2022.