Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Ljóst hverjir komust í 16 manna úrslit Íslandsmóts unglinga í holukeppni
Perla Sól Sigurbrandsdóttir er efst í telpnaflokki 14 ára og yngri.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 14. ágúst 2020 kl. 20:30

Ljóst hverjir komust í 16 manna úrslit Íslandsmóts unglinga í holukeppni

Íslandsmót unglinga í holukeppni fer fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 14.-16. ágúst.

Í dag, föstudag, fór fram 18 holu forkeppni í höggleik og er nú ljóst hvaða 16 keppendur halda áfram í hverjum flokki.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Dagur Fannar Ólafsson GKG lék á lægsta skorinu í dag þegar hann kom inn á 71 höggi. Hann er efstur í flokki drengja 15-16 ára og mætir því Tristan Snæ sem varð í 16. sæti.

Hér er hægt að sjá leikina í 16-manna úrslitunum.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða kylfingar leika í 16 manna úrslitum Íslandsmóts unglinga í holukeppni:

14 ára og yngri kvk:

1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, +3
2. Helga Signý Pálsdóttir, +9
3. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, +14
3. Þóra Sigríður Sveinsdóttir, +14

14 ára og yngri kk:

1. Veigar Heiðarsson, Par
2. Markús Marelsson, +5
3. Skúli Gunnar Ágústsson, +6

15-16 ára kvk:

1. Katrín Sól Davíðsdóttir, +10
2. María Eir Guðjónsdóttir, +11
3. Sara Kristinsdóttir, +12

15-16 ára kk:

1. Dagur Fannar Ólafsson, -1
2. Arnór Már Atlason, +3
3. Arnar Logi Andrason, +4
3. Bjarni Þór Lúðvíksson, +4
3. Jóhannes Sturluson, +4

17-18 ára kvk:

1. Hulda Clara Gestsdóttir, +2
2. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, +4
3. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, +8


Hulda Clara Gestsdóttir.

17-18 ára kk:

1. Sigurður Arnar Garðarsson, Par
2. Tómas Eiríksson Hjaltested, +1
2. Böðvar Bragi Pálsson, +1


Sigurður Arnar Garðarsson.

19-21 árs kvk:

Inga Lilja Hilmarsdóttir, Íris Lorange Káradóttir, María Björk Pálsdóttir og Jóna Karen Þorbjörnsdóttir hefja leik á laugardaginn.

19-21 árs kk:

1. Kristófer Karl Karlsson, Par
2. Daníel Ísak Steinarsson, +2
2. Jón Gunnarsson, +2


Kristófer Karl Karlsson.