Fréttir

Lokaúrtökumótið í beinni - dagur 3
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
sunnudaginn 17. nóvember 2019 kl. 07:30

Lokaúrtökumótið í beinni - dagur 3

Þriðji keppnisdagur lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð karla fer fram í dag á Lumine golfsvæðinu á Spáni. Blaðamaður Kylfings er á svæðinu og mun flytja fréttir af öllu því helsta sem þar fer fram.

Eins og greint var frá í gær er nú komið á hreint hvar strákarnir leika næstu tvo daga. Bjarki Pétursson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson leika báðir á Hills vellinum í dag á meðan Andri Þór Björnsson leikur á Lakes vellinum. Þeir skipta svo um völl á morgu n.

Eftir fjóra hringi verður skorið niður í mótinu og halda þá um 70 kylfingar áfram. Til þess að fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni þurfa strákarnir okkar að enda í einu af 25 efstu sætunum að sex hringjum loknum.

Bjarki fer fyrstur út af strákunum en hann hefur leik klukkan 8:10 að íslenskum tíma. Andri fer svo út klukkan 8:25 að íslenskum tíma og að lokum fer Guðmundur út klukkan 8:40 að íslenskum tíma.

Golfsamband Íslands í samstarfi við Kylfing verður með skor íslensku keppendanna í beinni á Twitter síðu Golfsambandsins en hægt verður að fylgjast með því hér fyrir neðan.