Fréttir

LPGA: Kim höggi á undan Thompson
Sei Young Kim.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
sunnudaginn 14. júlí 2019 kl. 12:30

LPGA: Kim höggi á undan Thompson

Marathon Classic mótinu líkur í dag á LPGA mótaröðinni og er það Sei Young Kim sem er í forystu fyrir lokahringinn. Hún er þó aðeins með eins höggs forystu á Lexi Thompson.

Kim lék á 66 höggum í gær, eða fimm höggum undir pari. Hún fékk sjö fugla á hringnum, tvo skolla og restina pör. Samtals er Kim á 16 höggum undir pari.

Thompson lék á 65 höggum í gær, eða sex höggum undir pari, og var það besti hringur gærdagsins. Hún er samtals á 15 höggum undir pari. Næst á eftir henni er Jeongeun Lee6 en hún er á samtals 12 höggum undir pari.

Eins og greint var frá fyrr í dag lék Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á 75 höggum, annan daginn í röð. Nánar má lesa um hringinn hennar hérna.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.