Fréttir

LPGA: Lee í forystu fyrir lokadaginn
Min Lee.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
sunnudaginn 13. júní 2021 kl. 21:02

LPGA: Lee í forystu fyrir lokadaginn

Lokadagur LPGA Mediheal Meistaramótsins fer fram í dag og eru lokaráshóparnir um það bil að hefja leik. Fyrir lokadaginn er Min Lee í forystu, tveimur höggum á undan næstu kylfingum.

Lee er samtals á níu höggum undir pari eftir hringi upp á 70, 69 og 68 högg. Í gær tapaði hún aðeins einu höggi en á móti fékk hún fimm fugla. Lee hefur aldrei unnið mót á LPGA mótaröðinni.

Jafnar í öðru sæti á sjö höggum undir pari eru þær Matilda Castern og Lauren Kim. Castern lék á 69 höggum í gær á meðan Kim lék á 71 höggi.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.