Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Þriðjudagur 14. júlí 2009 kl. 18:45

Lyle dregur í land með ummælin um Monty

Skotinn Sandy Lyle hefur dregið í land með yfirlýsingarnar í garð landa síns Colins Montgomerie, sem birtust í blöðum í dag, en þar brigslaði hann Monty um svindl í móti á Jakarta fyrir fjórum árum.

Lyle hafði verið þráspurður út í það hvort ákvörðun hans um að draga sig úr leik á Opna breska í fyrra hafi haft áhrif á val Ryder-nefndar Evrópu um að velja Monty framyfir hann sem fyrirliða Ryder-bikarliðs Evrópu fyrir keppni næsta árs. Hann brást loks illa við og sagði að það væri skárra að draga sig úr leik vegna eymsla, heldur en að grípa til „einskonar svindls“ eins og Monty gerði, en eftir hlé á téðu móti vegna rigningar, lét hann boltann detta í glompu á mun hagstæðari stað en áður.

Reglunefnd mótsins skoðaði málið og ræddi við Monty, sem sagði að um óviljaverk hafi verið að ræða, og ákvað að aðhafast ekki frekar í málinu, en Monty gaf verðlaunaféð sem hann fékk fyrir fjórða sætið á mótinu, til góðgerðarmála. Málið var þó hið vandræðalegasta fyrir hann og er oft rifjað upp til að klekkja á honum.

Lyle hefur sem sagt gefið út yfirlýsingu sem segir: „Mér þykir miður að hafa rifjað upp atvikið á Jakarta árið 2005. Við Colin Montgomerie erum ekki í stríði, heldur er Colin mikill meistari og góður vinur.

Athyglisvert er að ummælin viðhafði Lyle í síðustu viku, á meðan Opna skoska mótinu stóð, en þau voru ekki birt fyrr en í dag. Lyle sagði þau tekin úr samhengi þar sem hann hafi meint að hvorki atvikið hjá honum né Monty hafi haft áhrif á val Ryder-nefndarinnar.

Þó Monty hafi ekki enn tjáð sig um málið hefur annar gamalreyndur kappi, Bernard Gallagher, sem stýrði Ryder-liði Evrópu þrisvar á tíunda áratugnum, látið í sér heyra. Gallagher taldi ummælin ósæmileg og furðaði sig, eins og fleiri, á því að ljúfmennið Lyle skyldi hafa látið þau falla. Sagði hann að ráðamenn Evrópumótaðarinnar væru skyldugir til að refsa Lyle fyrir ummælin.

Þó Lyle hafi dregið nokkuð í land vildi hann samt ekki taka fyrir að framferði Montys í umræddu atviki á Jakarta hafi ekki verið eins konar svindl. „Það geta allir séð hvð gerðist. Ég var ekki að búa neitt til. Þetta var klaufalegt, en hans mistök og hann mun lifa við þau það sem eftir er, og ég get ekki gert neitt við því.“

Það mætti kannski stinga upp á því við Lyle að ef hann vildi gera eitthvað í því, mætti hann hætta að rifja atvikið upp.